Nýlega afhjúpaði rannsóknarteymi frá Xinjiang Institute of Ecology and Landography of Chinese Academy of Sciences lífmörk og aðlögun Syntrichia caninervis (sérstakur mosi) en rannsóknin sýndi í ljós nýtt met um þolmörk öfgakenndra lífsforma gagnvart umhverfi sínu og veitti mannfólki innblástur. Þau könnuðu einnig þolmörkin í geimnum og uppbyggingu lífs á öðrum plánetum.
Rannsóknarteymið komst að því að ólíkt venjulegum mosa, sem lifa í röku umhverfi, þá kýs þessi ákveðni mosi versta mögulega umhverfi, það er að segja eyðimerkur, hásléttur og heimskautasvæði.
Meðal þessara svæða eru Gurbantunggut-eyðimörkin í Xinjiang-héraði í Kína, sem er orðið stórt dreifisvæði fyrir mosann. Mjög erfiðar aðstæður í eyðimörkinni, eins og miklir þurrkar, lágt hitastig og geislun, hefur skapað sterkt þol fyrir mosann.