Yalu-ármýrin í borginni Dandong í Liaoning-héraði, staðsett við norðurhluta Gulahafs, er mikilvægt svæði fyrir fugla sem eru að flytjast meðfram Austur-Asíu-Ástralíu-leiðinni en flugleiðin spannar meira en 20 lönd og svæði frá norðurskautinu til Suðaustur-Asíu og Ástralíu.
Á hverju ári, frá mars til maí, flytja hundruð þúsunda strandfugla frá Ástralíu, Nýja Sjálandi og Suðaustur-Asíu til að verpa í austurhluta Rússlands og Alaska. Votlendið við Yalu-ánna þjónar sem nokkurs konar bensín- og hvíldarstöð fyrir fuglana þar sem þeir geta fengið nauðsynlega hvíld á ferðalagi sínu.